Hjartaknúsarinn Orlando Bloom, sem eitt sinn var giftur fyrirsætunni Miröndu Kerr, virðist vera kominn með nýja kærustu. Sú heppna er brasilíska leikkonan Luisa Moraes er fram kemur í frétt DailyMail.
Bloom og hin 28 ára Moraes sáust saman í gær á veitingastaðnum Zooma Sushi í Malibu. Þau gátu ekki tekið hendurnar af hvort öðru að sögn sjónarvotta.
„Þau mættu um klukkan 20:30. Þau snæddu sushi og drukku sake og kokteila. Þau voru ófeimin og gátu varla tekið hendurnar og varirnar af hvort öðru,“ sagði heimildamaður DailyMail.
Hinn 38 ára Bloom skildi við Kerr árið 2013 en saman eiga þau einn son.