Sean Penn strax byrjaður að „deita“

Sean Penn er nýhættur með Charlize Theron.
Sean Penn er nýhættur með Charlize Theron. AFP

Leikararnir Sean Penn og Charlize Theron hættu saman fyrir um tveimur vikum en Penn virðist strax vera byrjaður að „deita“ aftur. Penn bauð leikkonunni Minku Kelly út að borða á glæsilegan veitingastað í Kaliforníu fyrir viku.

Kelly fagnaði 35 ára afmæli sínu með Penn og þremur vinum sínum. Penn naut athyglinnar sem hann fékk frá viðstöddum að sögn sjónarvotta. Þau sungu afmælissönginn hátt og snjallt fyrir Kelly og gæddu sér á risavaxinni afmælistertu.

Penn borgaði svo reikninginn að því er fram kemur í frétt TMZ.

Kelly birti myndir frá kvöldinu á Instagram en minntist þó hvergi á Sean Penn.

Charlize Theron og Sean Penn hætt saman

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant