Voru ekki hissa þegar faðir þeirra yfirgaf þau

Oliver og Kate Hudson tala ekki við föður sinn.
Oliver og Kate Hudson tala ekki við föður sinn. usweekly.com

Systkinin Kate og Oliver Hudson voru ekki hissa þegar faðir þeirra, söngvarinn Bill Hudson, yfirgaf þau í æsku, vegna þess að hann hefur alltaf komið illa fram við þau. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði Us Weekly.

Bill Hudson greindi frá því í viðtali um helgina að börnin hans svo væru „ svo gott sem dáin“ fyrir sér, en systkinin létu ummæli hans ekki á sig fá, þau eru vön þessu að sögn náinna vina þeirra.

Heimildarmaður Us Weekly sagði systkinin ekki kæra sig um að eiga í samskiptum við föður sinn. „Þeim er alveg sama og þetta kom þeim ekki á óvart,“ sagði heimildarmaðurinn. „Þetta hefur alltaf verið svona, hann hefur alla tíð talað svona um þau.“

Oliver virðist þó vera nokkuð bitur yfir framkomu föður síns því á feðradaginn birti hann mynd af pabba sínum og óskaði systur sinni til hamingju með að hafa verið yfirgefin.

Móðir Kate og Olivers er leikkonan Goldie Hawn, hún var gift Bill frá árinu 1976 til ársins 1982.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant