Hótelerfinginn Paris Hilton hyggst kæra hrekkjalómana sem standa að gerð þáttarins Ramez In Control. Hilton var tekin allsvakalega fyrir í einum þættinum og óttaðist hreinlega um líf sitt á tímabili.
Þáttastjórnandinn Ramez Galal bauð Hilton í útsýnisflug yfir Dubai en þegar flugvélin var tekin á loft lét hann og aðrir aukaleikarar eins og flugvélin væri að hrapa. Hrekkurinn tókst og Hilton öskraði og grét.
Samkvæmt heimildum TMZ er Hilton afar ósátt og hyggst nú leggja fram kæru á hendur þeim sem bera ábyrgð á hrekknum kvikindislega. Hilton mun þá hafa ráðið teymi lögfræðinga í vinnu til sín.
„Óhugnanlegasta stund lífs míns. Ég hélt raunverulega að flugvélin væri að brotlenda og að við myndum deyja,“ skrifaði Hilton á Twitter eftir flugferðina óhugnanlegu.
Paris Hilton hélt hún myndi deyja