Hjónin David og Victoria Beckham gengu í það heilaga 4. júlí árið 1999. Þau hyggjast verja 16 ára brúðkaupsafmælinu sínu í faðmi fjölskyldunnar.
Beckham-hjónin ætla að halda grillveislu með börnunum sínum fjórum og öðrum fjölskyldumeðlimum á laugardaginn í tilefni af brúðkaupsafmælinu. Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði tímaritsins Closer.
„Þau verða í Los Angeles á brúðkaupsafmælinu, þau munu halda heljarinnar grillveislu með fjölskyldu og vinum.“
Hjónabandið hefur aldrei verið betra að söng heimildamanns Closer. „Hjónabandið batnar með hverju árinu, þau hafa orðið nánari með árunum.“