Þættirnir X-Files eru væntanlegir á skjáinn aftur eftir 13 ára hlé og leikararnir Gillian Anderson og David Duchovny vörðu dágóðum tíma í að undirbúa sig fyrir hlutverk sín sem þau Fox Mulder og Dana Scully. En Anderson, sem skartaði rauðu hári í þáttunum á sínum tíma, var ráðlagt að lita hár sitt ekki rautt fyrir nýju þættina.
Hárgreiðslumaður Anderson mælti gegn því að leikkonan litaði hárið rautt fyrir hlutverk sitt í X-Files. Ástæðan mun vera sú að litunin myndi hafa verulega slæm áhrif á hár Anderson sem er með ljóst hár þessa stundina.
„Ég var farin að hlakka til að verða rauðhærð en mér var sagt að ef ég litaði hárið aftur myndi ég enda sköllótt,“ sagði leikkonan í viðtali við Entertainment Weekly.
Anderson notaðist því við rauða hárkollu í þáttunum, það þótti henni óþægilegt. „Ég var með dúndrandi hausverk á hverjum degi. Ég vil að aðdáendur mínir viti að ég þjáist fyrir rauða hárið.“
X-Files snýr aftur eftir 13 ára auglýsingahlé