Novak Djokovic bar sigur úr býtum á Wimbledon-mótinu gegn Ástralanum Bernard Tomic. Að leik loknum áritaði Djokovic bolta, hatta og dagskrárbæklinga fyrir aðdáendur.
Þegar hann kom að enda raðarinnar þar sem aðdáendur biðu mætti honum heldur óvenjuleg sjón. Maður í hjólastól rétti honum gervifót og bað um áritun á hann.
„Maðurinn rétti mér gervifót,“ segði hinn 29 ára gamli Djokovic. „Ég áritaði fótinn. Ég vona að honum líði betur við það.“