Kourtney Kardashian á lausu

Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin.
Kourtney Kardashian, Scott Disick og börnin. mbl.is/AFP

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian hefur nú endað samband sitt við Scott Disick, barnsföður sinn og sambýlismann til níu ára. Heimildarmenn segja að hann hafi nú misst tökin á lífi sínu og stundi skemmtanalífið af fullum krafti.

Á vefnum tmz.com kemur fram að Disick hafi ekki komið heim í rúman mánuð og því hafi Kardashian misst þolimæðina. Heimildarmaður segir í samtali við tmz að viðstöðulaus partí hafi gert það að verkum að hún varð að taka þessa ákvörðun. Þá segir að hún sé einnig pirruð út í vini Disick og telji þá ýta undir neyslu hans og glæfralíferni. 

Parið hefur verið saman frá árinu 2006. Þau eiga þrjú börn saman en eins og áhorfendur hafa séð í þáttunum Keeping up with the Kardashians hefur samband þeirra verið óstöðugt í gegnum árin. Nú verður Kardashian aftur á móti að huga að því sem er best fyrir börnin segir á vef tmz.

Disick sást síðast í Monte Carlo með stjörnustílistanum Chloe Bartoli. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson