Ciara vill bíða með kynlífið

Ciara er nú á föstu með hafnaboltaleikmanninum Russel Wilson.
Ciara er nú á föstu með hafnaboltaleikmanninum Russel Wilson. Instagram

Söngkonan Ciara og Russel Wilson sem spilar amerískan fótbolta hafa verið að stinga saman nefjum undanfarið. Parið hefur ákveðið að bíða með það að stunda kynlíf og vill byrja sambandið með rósemi af trúarástæðum.

Á vef Contactmusic kemur fram að Wilson hafi borið sambandið undir prestinn Miles McPherson í kirkjunni Rock Church í San Diego. „Ég spurði hana hvort við gætum elskað hvort annað án þess að stunda kynlíf og hún var til í það. Ég tel að sönn ást sé að geta elskað án þess að stunda kynlíf,“ sagði Wilson. Hann viðurkenndi þó að kynlífsleysið væri erfitt og bað viðstadda í kirkjunni um að biðja fyrir sér.

Í viðtalinu hrósaði Wilson Ciöru í hástert og lýsti henni sem fallegustu konu í heimi. Hann telur sambandið hafa verið ákveðið fyrirfram þar sem hann var alltaf viss um að þau myndu enda saman. „Guð færði okkur saman.“

Parið hefur sést mikið saman undanfarið ár en þetta er í fyrsta skipti sem þau hafa tjáð sig um sambandið opinberlega. 

Ciara á fyrir eitt barn með rapparanum Future en þau slitu trúlofun sinni í ágúst á seinasta ári. Þá var Wilson, sem spilar fyrir Seattle Seahawks, giftur æskuástinni sinni, Asthon Meem, þau skildu einnig í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant