Hvetur fólk til að virða transfólk

Ræða Caitlyn Jenner.
Ræða Caitlyn Jenner. Skjáskot

Caitlyn Jenner uppskar mikil fagnaðarlæti frá stærstu íþróttastjörnum heims er hún tók við Arthur Ashe-verðlaunum fyrir hugrekki á árlegri hátíð afreksfólks í íþróttum. Þetta er stærsti viðburður sem Jenner hefur komið opinberlega fram á eftir að hún gekkst undir kynleiðréttingu. 

Á hátíðinni flutti Jenner afar hjartnæma ræðu þar sem hún hvatti fólk til að viðurkenna transfólk í samfélaginu. 

„Ég get ekki ímyndað mér neitt erfiðara en það að fara í kynleiðréttingu.“ Þá sór Jenner þess eið að gera allt sem í sínu valdi stæði til að breyta því hvernig litið er á transfólk í samfélaginu. 

Hún var afar ánægð með verðlaunin og þakkaði fjölskyldu sinni ómetanlegan stuðning. „Ætlun mín var aldrei að særa neinn, sérstaklega ekki fjölskylduna mína né börnin mín.“

Þá talaði Jenner um ungt transfólk og hversu erfitt ferlið væri fyrir þau. „Þeim er strítt, þau eru lamin, þau eru myrt og þau fremja sjálfsmorð. Tölurnar eru yfirþyrmandi en svona er raunveruleiki transfólks í dag. Við eigum betra skilið, við eigum skilið virðingu.“

Hún bað áhorfendur um að hjálpa sér að taka á vandanum. „Ég get tekið allri umfjölluninni og gagnrýninni sem ég fæ en þúsundir barna sem eru að uppgötva hver þau eru í raun og veru eiga ekki að þurfa að upplifa það.“

Áhorfendur horfðu einbeittir á ræðu Jenner en á meðan var sýnt myndband af lífi hennar frá því að hún var þekkt sem Bruce til dagsins í dag. Ræðan uppskar misjöfn viðbrögð áhorfenda sem dáðust þó að hugrekki Jenner.

Frétt Sky News 

Frétt mbl.is - Caitlyn Jenner á forsíðu Vanity Fair

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson