Dauðadrukkinn greifingi á pólskri sólarströnd

Wandzia er nú að jafna sig. Ætli hún haldi áfram …
Wandzia er nú að jafna sig. Ætli hún haldi áfram uppteknum hætti þegar hún verður látin laus? Ljósmynd/Fundacja Na Rzecz Zwierząt "Dzika Ostoja "

Kvenkyns greifingi er nú að jafna sig í dýraathvarfi, tveimur dögum eftir að partýdýrið fannst á strönd. Dýrið var, eins og lögreglan myndi orða það, í annarlegu ástandi og hafði dáið áfengisdauða á ströndinni.

„Ó þessi æska, ó sumarfrí,“ grínaðist athvarfið Dzika Ostoja með í færslu á Facebooksíðu athvarfsins í dag, þar sem sagt var frá ævintýrum greifingjans Wandzia í sumardvalarstaðnum Rewal við Eystrasaltið.

„Við fundum Wandzia drukkna, umkringda sjö (tómum) bjórflöskum. Svo voru tvær til viðbótar í nærstöddum runna, svo það er ekki ólíklegt að partýið hafi byrjað þar. Haha,“ segir á Facebooksíðu athvarfsins.

Talið er að greifinginn hafi stolið bjórnum frá mennskum félögum sínum á ströndinni, og að hún hafi svo notað tennurnar til að ná tappanum af flöskunum. Wandzia svaf úr sér í tvo heila sólarhringa, sagði Marzena Bialowolska, yfirmaður athvarfsins, í samtali við AFP. Hún bætti við að hún væri að nokkru leyti búin að jafna sig, en gæti enn ekki setið upprétt.

„Hún hefur sofið, drukkið (vatn) og borðað kjúklingakjöt,“ sagði hún. Ef allt fer vel verður Wandzia sleppt aftur út í náttúruna áður en vikan er úti.

Wandzia er ekki sú fyrsta sinnar tegundar til að fikta við áfengisdrykkju. Árið 2009 var lögregla í Þýskalandi kölluð til til að ná „sauðdrukknum“ greifingja af veginum, sem hafði hámað í sig ofþroskuð kirsuber.

WANDZIA ...Hmm dosłownie nie mam pojęcia, jak Wam to przekazać...żeby tak chociaż troszeczkę obronić te młodą damę...ale narozrabiała, więc musi ponieść konsekwencję .Otóż Wandzia, to Pani borsuk ;-) która dwa dni temu okradła wczasowiczów z 7 piw Desperados i na plaży w Rewalu wszystkie wypiła- kapsle zgryzła zębami! Straż Miejska powiadomiła nas o tym fakcie. Na miejscu zastaliśmy pijaną Wandzię, której było wszystko jedno w koło 7 butelek. W krzakach były jeszcze dwie, więc Wandzia może tam zaczęła imprezkę ..haha. Na dzień dzisiejszy Wandzia jeszcze pod lekkim "wpływem" ale zaczyna jeść- fakt na leżąco, ale są postępy. Dzisiaj kolejna wizyta u weterynarza :-) ACH TA MŁODZIEŻ...ACH TE WAKACJE..PIŁEŚ NIE ZASYPIAJ NA PLAŻY ;-)

Posted by Fundacja Na Rzecz Zwierząt "Dzika Ostoja " on Wednesday, July 29, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson