Leikstjóri Law and Order ákærður fyrir vörslu barnakláms

Jace Alexander leikstjóri þáttanna Law and Order.
Jace Alexander leikstjóri þáttanna Law and Order. Skjáskot af vef Independent

Jace Alexander, leikstjóri þáttanna Law and Order, var nýverið handtekinn fyrir vörslu og dreifingu barnakláms.

Í yfirlýsingu frá ríkislögmanni í Westchester segir að Alexander sé ákærður fyrir dreifingu á myndböndum sem að sýna börn staka þátt í kynferðislegu athæfi og fyrir vörslu á slíkum myndum.

Alexander er sjálfur tveggja barna faðir. Hann var handtekinn eftir að IP-tala sem var að niðurhala barnaklámi var rakin til hans. Þá var leitað á heimilinu og Alexander handtekinn í framhaldi.

„Eftir rannsókn á tölvum og hörðum diskum á heimili Alexander fundust myndir og myndbönd af börnum undir lögaldir í kynferðislegum stellingum,“ segir ríkislögmaður. 

Samkvæmt frétt Independent verður Alexander leiddur fyrir rétt þann 19. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson