Söngkonan Katy Perry á nú í deilum vegna margra milljóna króna klausturs sem hún hyggst leggja kaup á í Los Angeles.
Til þess að koma í veg fyrir að Perry keypti klaustrið seldu nunnurnar viðskiptakonunni Dönu Hollister eignina fyrir rúma tvo milljarða íslenskra króna. Af því áttu þó að nýta um sjöhundruð milljónir í að byggja nýtt bænahús fyrir þær. Nunnurnar segja Perry ósiðsamlega klædda í myndböndum sínum og syngi um hluti eins og að kyssa stelpur.
Samkvæmt vefnum Independent vill erkibiskupinn Jose Gomez selja Perry húsið. Dómstólar komust að þeirri niðurstöðu að salan til Hollister hafi verið ólögleg en segja þó að málið sé umfangsmikið og Perry muni ekki ná að eignast klaustrið á næstunni.