Spænski leikarinn Antonio Banderas og meðleikarar hans í myndinni 33 hittu forseta Síle í dag vegna þess að myndin verður frumsýnd þar í landi á fimmtudag. Í kjölfar fundarins var haldinn blaðamannafundur með leikurum myndarinnar.
Myndin fjallar um Námuverkamenn sem sátu fastir í 69 daga í gull-og koparnámu í Síle haustið 2010. Þeir voru 33, eins og titill myndarinnar gefur til kynna og voru fastir á 700 metra dýpi í námunum í San Jose.
„Síle-búar líta öðrum augum á sjálfa sig en aðrar þjóðir. Í öðrum löndum var litid á þetta sem gríðarlegt afrek landsins alls og það er staðreynd; þetta var auðvitað mikið afrek,“ sagði Banderas við blaðamenn.
Hér að neðan má sjá sýnishorn úr myndinni