Eins vinsælir og Skósveinarnir eru voru ökumenn í Dublin ekki hressir þegar að risavaxinn uppblásinn útgáfa af Skósveininum Kevin féll yfir hraðbraut og stöðvaði alla umferð í um fimmtán mínútur.
Töluverður vindur var á svæðinu sem að olli slysinu. Þegar að lögreglan mætti á slysstað þurfti að sprengja brúðuna og koma henni af svæðinu. Samkvæmt vefnum TheJournal.ie urðu engin slys á fólki.
Flestum þótti uppákoman fyndin og tjáði þingmaðurinn Paul McAuliffe sig á Twitter síðu sinni þar sem hann sagði slysið vera fyndið en á sama tíma stórhættulegt.
Escaped Minion at Omni in Santry may seem hilarious but its a dispicable breach of health & safety @DubCityCouncil pic.twitter.com/w443usabzb
— Cllr Paul McAuliffe (@PaulMcauliffe) August 3, 2015