Hljómsveitin Rae Sremmurd spilaði við mikinn fögnuð í Laugardalshöllinni í kvöld. Hljómsveitin er einna þekktust fyrir lagið No Type sem kom út í fyrra og vakti mikla lukku, en það hefur verið spilað ríflega 255 milljón sinnum á Youtube.
Dúettinn er skipaður bræðrunum Swae Lee og Slim Jimmy. Lee og Jimmy ólust upp í fátækrahverfi í Tupelo í Missisippi, bjuggu árum saman á götunni, unnu af kappi að tónlist og héldu teiti til að vekja á sér athygli.
<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="360" src="https://www.youtube.com/embed/wzMrK-aGCug" width="640"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>