Tjáir sig um samband sitt og Bieber

Söngkonan Selena Gomez.
Söngkonan Selena Gomez. mbl.is/AFP

Söngkonan Selena Gomez opnaði sig nýverið um samband sitt og Justin Bieber. Þau slitu sambandi sínu í fyrra og höfðu þá verið saman í fimm ár.

„Fólki finnst erfitt að taka því að við séum hætt saman. Internetið vill geyma þetta augnablik og endurtaka það aftur og aftur. Ég hélt að ég væri ekki að gera neitt rangt með því að verða ástfangin,“ sagði Gomez í viðtali við The Sunday Times.

„Það er lögð svo mikil áhersla á það að allir séu fullkomnir og svo er fólk tekið af lífi í fjölmiðlum því það selst. Að fara í gegnum þetta á unglingsárunum gerir allt erfiðara.“

Þá sagði Gomez að vinkona sín Taylor Swift hafi hjálpað sér í gegnum ferlið og ávallt verið til staðar.

Áður en Gomez byrjaði með Bieber var hún í sambandi við Nick Jonas. Þá var Gomez aðeins þrettán ára gömul. Hún tjáði sig einnig um samband sitt og Jonas og þá ákvörðun að vera með hringi sem að þýddu það að parið ætlaði sér ekki að stunda kynlíf saman. 

„Ég skammast mín ekki fyrir að hafa borið hringinn og ég skammast mín heldur ekki fyrir það að hafa tekið hann af mér. Ég fékk hann þegar ég var þrettán ára og virði það sem hann stóð fyrir þó svo að það henti ekki öllum.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson