Vildi ekki taka að sér hlutverk Bradshaw

Sarah Jessica Parker.
Sarah Jessica Parker. Brad Barket

Sarah Jessica Parker sem hvað þekktust er fyrir hlutverk sitt sem Carrie Bradshaw í þáttunum „Sex and The City“ vildi í fyrstu ekki taka að sér hlutverk Bradshaw.

Þetta segir Seth Rudesky vinur Parker og eiginmanns hennar Matthews Broderick í viðtali við Playbill magazine. Hann segir Parker hafa viljað losna úr þáttunum eftir að hún komst að því að HBO væri framleiðandi þeirra.

„Hún vildi ekki binda sig í einu hlutverki því hún elskaði að fara á milli hlutverka. Hún reyndi að komast hjá því að leika Bradshaw og sagði meðal annars við HBO að hún væri til í að gera þrjár þáttaraðir frítt ef þeir myndu rifta samningnum,“ segir Rudesky.

Til allra lukku náði HBO að sannfæra Parker um að staldra lengur við. „Þeir sannfærðu hana um að klára samninginn og nú sér hún ekki eftir neinu.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson