Huga að flutningum til London

Hjónin Brad Pitt og Angelina Jolie.
Hjónin Brad Pitt og Angelina Jolie. mbl.is/AFP

Angelina Jolie og Brad Pitt leita sér nú að heimili í London. Samkvæmt heimildarmanni Us Weekly er Jolie að huga að því að sökkva sér í stjórnmál í Evrópu.

Hjónin skoðuðu sjö herbergja hús í Westminster hverfinu í London í júní. Húsið kostaði rúmlega fimm milljarða íslenskra króna og segir heimildarmaður Us Weekly að parið hafi þurft að hugsa sig um áður en það festi svo mikla fjármuni í einni eign. „Þetta er stór fjárfesting. Hvorugt þeirra vill binda svo mikið af seðlum í einni eign.“

Þau Jolie og Pitt hafa heimsótt London nokkrum sinnum í sumar og átti Jolie meðal annars fund þar til að ræða utanríkisstefnu Bretlands og herferð sína sem vinnur að því að binda endi á kynferðisofbeldi í stríði.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson