Sögusagnirnar um Affleck taka á

Jennifer Garner og Ben Affleck.
Jennifer Garner og Ben Affleck. AFP

Jennifer Garner og Ben Affleck hafa sést mikið saman eftir að þau tilkynntu um skilnað sinn í júní. Ástæðan er sú að þau vilja ekki að skellurinn verði of mikill fyrir börnin sín. Þau búa enn í sama húsinu en halda sig þó hver á sínu svæði. Nú virðist þó sem Garner sé komin með nóg af þessari búsetu.

„Garner mun alltaf sjá til þess að Ben eyði eins miklum tíma og hann þarf með börnunum en hún er að endurhugsa búsetuna. Hún þolir ekki þær aðstæður sem Affleck hefur komið fjölskyldunni í,“ segir vinur fjölskyldunnar í samtali við People magazine.

Með þeim aðstæðum sem Affleck hefur komið í fjölskyldunni í á Garner við þær sögusagnir sem hafa gengið um að Affleck hafi átt í ástarsambandið við fyrrum barnapíu fjölskyldunnar Christine Ouzounian. Affleck hefur þó ávallt neitað þeim sögusögnum.

Samkvæmt heimildarmanni People ætlar Garner að taka á málinu þegar hún kemur aftur til Los Angeles en undanfarið hefur hún verið í Atlanta við tökur á myndinni „Miracles From Heaven.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant