Allir foreldrar vita að börn taka upp á ótrúlegustu hlutum, sérstaklega þegar þau eru skilin eftir ein, eða með systkinum sínum, í einhvern tíma. Löng þögn bendir yfirleitt til þess að eitthvað undarlegt sé í gangi, sem það svo sannarlega var staðan hjá börnum Gina Gardner Brown.
Þau eru þriggja ára og 18 mánaða. Það yngra er á myndbandinu húðað með hnetusmjöri, sér að því er virðist til mikillar ánægju. Þegar móðir þeirra spurði hvað væri í gangi svaraði dóttirin því einfaldlega til að hún hefði verið að skrúbba bróður sinn. Blaðamaður áttaði sig ekki alveg á hvað ungi maðurinn sagði þegar hann var ávarpaður, en hann virtist nokkuð ánægður með meðferðina sem hann hlaut.
<iframe allowfullscreen="" frameborder="0" height="360" src="https://www.youtube.com/embed/bR7ySB0LbCo" width="480"></iframe><div id="embedded-remove"> </div>