Taylor Swift drottning MTV hátíðarinnar

Taylor Swift
Taylor Swift AFP

Tónlistarkonan Taylor Swift fór með sigur af hólmi í fjórum flokkum á MTV Video tónlitarhátíðinni vestanhafs í nótt. Swift var tilnefnd til 10 verðlauna. Hún var meðal annars verðlaunuð fyrir myndskeið ársins Bad Blood ásamt Kendrick Lamar og besta popptónlistarmyndbandið Blank Space.

En auk Swift voru það bandaríska tónlistarkonan Nicki Minaj og rapparinn Kanye West sem áttu sviðið á verðlaunahátíðinni. 

West boðaði forsetaframboð árið 2020 og var ákaft fagnað af aðdáendum sínum og eiginkonunni, Kim Kardashian.

West var heiðraður á hátíðinni fyrir framlag sitt til tónlistarinnar og þegar hann tók við verðlaununum boðaði hann forsetaframboð og játaði að hafa reykt maríjúana áður en hann kom fram á hátíðinni. 

Miley Cyrus var ein af  þeim sem kynntu verðlaunahafa kvöldsins en hún kynnti einnig nýjustu plötu sína sem er dreift ókeypis á netinu. Aðdáendur hennar stukku til og hófu að hala plötuna niður með þeim afleiðingum að vefurinn hrundi. Cyrus var búin að boða að hún myndi vekja athygli á hátíðinni og tókst henni það heldur betur með því að upplýsa um hægt væri að nálgast plötuna ókeypis á netinu og síðan beraði hún vinstra brjóst sitt og geirvörtu á sviði hátíðarinnar áður en hún yfirgaf það. Það er eflaust mörgum ferskt í minni þegar  hún flutti lag með Robin Thicke við eggj­andi dans­spor á hátíðinni fyrir tveimur árum og síðar þegar hún kveikti sér í því sem talið er hafa verið jóna á sviðinu.

Allt sem þú þarft að vita um MTV 

Nicki Minaj
Nicki Minaj AFP
Kanye West
Kanye West AFP
Kim Kardashianog Kayne West
Kim Kardashianog Kayne West AFP
Miley Cyrus
Miley Cyrus AFP
Miley Cyrus
Miley Cyrus AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vinur þinn gæti borið undir þig hugmynd að sparnaði í tengslum við ferðalög í dag. Allar fjármálaumræður dagsins geta fært þér hagnað þegar til lengri tíma er litið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Laila Brenden
2
Erla Sesselja Jensdóttir
3
Sigríður Dúa Goldsworthy
4
Lars Kepler