Þessum stangveiðimönnum í Alabama brá heldur betur í brún þegar til þeirra synti lítill og ræfilslegur gulur kettlingur. Fyrst synti annar kettlingurinn að bátnum, og þegar hinn sá að honum var bjargað um borð í bátinn stökk hann rakleiðis til sunds.
Veiðimennirnir björguðu litlu skinnunum, en þeir segja í myndbandinu að þeir telji þá vera tvíbura vegna þess hversu líkir þeir eru. Þeir telja að einhver „hálfviti“ hafi skilið þá eftir við ána. Þegar þeir nálguðust bátinn kom í ljós að um stálpaða ketti var að ræða, sem virtust engu að síður mjög þakklátir fyrir lífsbjörgina.