Treyja sem körfuboltakappinn Micheal Jordan klæddist í kvikmyndinni Space Jam fer á uppboð í október. Þá sem dreymir um að eignast treyjuna þurfa að eiga að lágmarki 1,3 milljónir króna.
Jordan klæddist treyjunni fyrir hlutverk sitt í Space Jam sem kom út árið 1996 en sú kvikmynd var geysivinsæl.
Treyjan verður boðin upp á vefnum Invaluable þann 1. október og fyrsta boð hljóðar upp á 1,3 milljónir króna.