Hulk Hogan tók „verulega slæmar ákvarðanir“

Hulk Hogan.
Hulk Hogan.

Dóttir Hulk Hogan, Brooke Bollea, hefur fyrirgefið föður sínum fyrir að láta rasísk ummæli falla um þáverandi kærasta hennar fyrir átta árum. Hún segir Hogan hafa tekið verulega slæmar ákvarðanir í gegnum tíðina en er tilbúin að ná sáttum.

Hogan lenti í vandræðum þegar upptaka af honum að tala um þáverandi kærasta dóttur sinnar komst á yfirborðið. Í upptökunni mátti heyra Hogan nota niðrandi orð til að lýsa kærastanum.

„Það sem hann sagði var rangt en ég veit að þetta var ekki hans innri maður. Hann hefur sagt mér frá því að hann hefur tekið verulega slæmar ákvarðanir en það breytir því ekki að ég er litla stelpan hans og hann elskar mig,“ sagði Bollea í viðtali við tímaritið People.

Hogan sjálfur viðurkennir að upptakan hafi kennt honum mikilvæga lexíu. „Dagurinn sem upptakan var gerð opinber er verst dagur lífs mín og besti dagur lífs míns.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Eitt og annað hefur rekið á fjörur þínar, sem fær þig til að efast um þá þú hefur treyst hingað til. Yfirboðarar þínir munu koma þér á óvart næstu vikur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant