Kelis á von á barni númer tvö

Íslandsvinkonan Kelis spilaði á Secret Solstice-hátíðinni og fékk sér Fabrikkuborgara.
Íslandsvinkonan Kelis spilaði á Secret Solstice-hátíðinni og fékk sér Fabrikkuborgara. Mynd/Hamborgarafabrikkan

Íslandsvinkonan Kelis á von á barni. Fyrir á hún sex ára son, Knight, sem hlakkar til að verða stóri bróðir. Sjálf er Kelis himinlifandi.

Söngkonan greindi frá þessu í viðtali við US Weekly. „Ég er ólétt. Þetta er ótrúlegt. Sonur minn er spenntur og ég er himinlifandi. Ég er að gefa út matreiðslubók og á von á barni, þetta eru spennandi tímar.“

Kelis þróað með sér mikla löngun í tómata á fyrri meðgöngunni. „Nágranninn minn ræktaði tómata og skildi þá eftir á dyraþrepinu hjá mér. Ég skar þá niður, stráði salt og pipar yfir þá og borðaði þá þannig,“ útskýrði Kelis sem er hrifin af öllum mat á þessari meðgöngu. „Ég er opin fyrir öllu. Ef einhver nefnir einhvern mat þá fer ég að hugsa um hann og þrá hann.“

Kelis á soninn Knight með rapparanum Nas en þau skildu þegar Kelis var komin sjö mánuði á leið.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson