Ólétt aftur?

Katrín hertogaynja af Cambridge.
Katrín hertogaynja af Cambridge. mbl.is/AFP

Katrín hertogaynja af Cambridge eignaðist Karlottu litlu 2. maí síðastliðinn og nú er kominn orðrómur um að hún sé komin aftur af stað og eigi von á sínu þriðja barni.

Heimildarmaður staðfestir orðróminn í samtali við tímaritið Star Magazine. Í síðasta mánuði átti hertogaynjan að mæta með sínum heittelskaða eiginmanni í brúðkaup í All Saints kirkjunni í Thurlestone í Suður Devon. Hertogaynjan mætti hinsvegar ekki og tók Vilhjálmur mágkonu sína, Pippu Middleton, með sér í brúðkaupið.

Heimildarmaður segir í samtali við Hollywood Life segir að Vilhjálmur leggi mikið upp úr því að hertogaynjan passi vel upp á heilsufarið og stefni því ekki í voða. Hún hafi verið heima með Georg og Karlottu þessa helgi sem brúðkaupið var því hún treysti sér ekki.

Þegar hertogaynjan gekk með frumburðinn var hún ógurlega slöpp fyrstu mánuðina og fór varla út úr húsi.

Ef rétt reynist á hertogaynjan von á sér í apríl eða maí á næsta ári. Erlenda pressan veltir þeim möguleikum upp að hún mun ekki láta sjá sig opinberlega fyrr en um áramótin því það muni fljótlega fara að sjást á henni.

Í samtali við The Telegraph sagði Vilhjálmur í júlí að hann vissi ekkert hvað framtíðin bæri í skauti sér varðandi barneignir. Þau væru búin að eignast tvö börn og það væri of snemmt að velta framhaldinu fyrir sér.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant