Söngkonan Ciara og kærastinn hennar, íþróttakappinn Russell Wilson, eru sátt með ákvörðun sína um að bíða með allt kynlíf fram að brúðkaupi af trúarlegum ástæðum. Kynlífsleysið gengur vel og hefur ekki valdið neinum vandræðum hingað til að þeirra sögn.
Hin 29 ára Ciara, sem á eins árs gamlan son með rapparanum Future, kveðst vera ánægð með að hafa opnað sig um kynlífsleysið við fjölmiðla. Hún kveðst þá eiga auðvelt með að ræða þessa hluti við pör sem eru að upplifa það sama og hún. „Ég held að það sé margt fólk þarna úti eins og við. Ég rekst á fólk sem vill segja mér frá sinni upplifun og sínu sambandi. Mér finnst það svo frábært,“ sagði Ciara í viðtali við E!.
Ciara virðist vera afar hamingjusöm með Wilson og kynlífsleysið. Hún segir Wilson vera besta vin sinn. „Við fáum að upplifa raunverulega hluti saman. Við erum raunverulegt fólk.“