Sótti um aðild að golfklúbb undir nafninu Bruce

Caitlyn Jenner.
Caitlyn Jenner. AFP

Caitlyn Jenner, sem gekkst undir kynleiðréttingu fyrr á árinu, sótti nýverið um aðild að golfklúbb undir sínu gamla nafni, Bruce Jenner.

Caitlyn sótti um aðild að Sherwood Country klúbbnum í Thousand Oaks, Kaliforníu. Á pappírunum sem hún fyllti út notaði hún gamla nafnið sitt svo að hún gæti spilað brautir fyrir bæði karla og konur. Nýjasta svæði klúbbsins hefur nefnilega að geyma svæði sem eru kynjaskipt.

Þetta kom fram í raunveruleikaþættinum I am Cait. Vinkona Caitlyn, Ronda Kamihira, var ekki beint ánægð með ákvörðun Caitlyn.

„Hvað ætlaðu að gera? Fara í hettupeysu og þykjast ekki vera þú?“ sagði Kamihira hneyksluð. „Líklegast. Og svo þegar ég er komin út á völlinn fer ég úr [gervinu],“ sagði Caitlyn.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant