HAM ásamt Lazyblood fóru á kostum á tónleikum í Gamla Bíói í gærkvöldi.
Meðlimir hljómsveitarinnar HAM eru fimm, þeir Sigurjón Kjartansson, Óttarr Proppé, Björn Blöndal, Flosi Þorgeirsson og Arnar Geir Ómarsson. HAM var stofnuð árið 1988 og hefur starfað með hléum síðan þá.
Lazyblood er nokkuð óþekktari. Hana skipa listaparið Erna Ómarsdóttir danshöfundur og Valdimar Jóhannsson tónlistarmaður.