Amber Rose fyrirgefur Kanye West

Amber Rose er ötull talsmaður gegn drusluskömm.
Amber Rose er ötull talsmaður gegn drusluskömm. mbl.is/Cover media

Fyrirsætan Amber Rose hélt átakanlega ræðu í druslugöngunni sem fram fór í Los Angeles í gær þar sem hún lýsti reynslu sinni af drusluskömm og neikvæðu umtali. Hún lýsti því einnig yfir að hún hefði fyrirgefið fyrrverandi kærasta sínum, Kanye West eins og fram kemur á vef Contactmusic.

 „Ég hef ákveðið að halda þessa druslugöngu fyrir konur sem hafa þurft að þola skítkast. Þrátt fyrir að gráta hér uppi vil ég vera sterk fyrirmynd sem þið getið litið upp til, ég vil einnig biðjast afsökunar fyrir hönd allra karlmanna. Mig langar að fyrirgefa Kanye það sem hann sagði um mig því ég vil sleppa tökunum á allri þessari neikvæðni.“

West lýsti því yfir í útvarpsviðtali fyrr á árinu að eiginkona hans, Kim Kardashian, hefði skipað honum að fara í 30 sturtur áður en þau stunduðu kynlíf. Að sögn vildi Kardashian ekki sænga með manni sem hefði stundað kynlíf með Rose, því hún var eitt sinn nektardansmey.

Rose setti nýverið á laggirnar góðgerðarsjóð, The Amber Rose Foundation, sem er ætlað að vekja fólk til vitundar um drusluskömm auk þess að berjast gegn kynferðislegu ofbeldi.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant