Við erum eins og Brad Pitt og Angelina Jolie

Peter Andre og Katie Price áður en leiðir skyldu.
Peter Andre og Katie Price áður en leiðir skyldu. mbl.is/AFP

Katie Price segir að hún og fyrrverandi eiginmaður hennar, Peter Andre, séu eins og Brad Pitt og Angelina Jolie. Sérstaklega í hugum bresku þjóðarinnar. En glamúrfyrirsætan Price, sem einnig er þekkt sem Jordan, lýsti því yfir í viðtali að breska þjóðin væri með hana og fyrrverandi eiginmann hennar á heilanum, líkt og fram kemur í frétt Contactmusic.

„Við höfum bæði sagt skilið við fortíðina, en við erum eins og Brad Pitt og Angelina Jolie, það eru allir með fyrrverandi maka okkar á heilanum.“

Price og Andre gengu í hjónaband 2005, en leiðir þeirra lágu saman í raunveruleikaþættinum I‘m a Celebrity Get Me Out of Here. Saman áttu þau síðan tvö börn, Junior og Princess Tiaamii áður en þau skildu árið 2009.

Andre er einn af keppendunum í bresku raunveruleikaþáttunum Strictly Come Dancing og telur Price, sem nú er gift á ný, hann sigurstranglegan. Hún ætlar þó ekki að horfa á þættina.

„Ég ætla ekki að fara að sitja í sófanum með eiginmanni mínum og horfa á Peter dansa.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant