Fyrrverandi kærasta Jim Carrey var gift þegar hún lést þann 28. september, en hún er talin hafa stytt sér aldur. Niðurstöður úr krufningu liggja þó enn ekki fyrir líkt og fram kemur í frétt Daily Mail.
Lík White verður afhent eiginmanni hennar og flutt til Írlands til greftrunar. Nafn eiginmannsins hefur ekki verið gefið upp, né heldur er vitað hversu lengi þau hafi verið gift.
White sem var förðunarfræðingur hafði verið að hitta leikarann Jim Carrey síðan 2012, en þau höfðu nýlega slitið sambandi sínu þegar White lést.
Heimildamaður segir að White hafi verið skilin af borði og sæng við eiginmann sinn og að skilnaðurinn væri í ferli.
„Jim hefði aldrei látið sjá sig með henni opinberlega ef hann hefði vitað að hún væri gift.“
„Jim leit svo á það að hún væri skilin við eiginmann sinn og að gengið yrði frá skilnaðnum í desember. Fólk sem er skilið af borði og sæng má hitta þá sem því sýnist.“
Að sögn er Carrey niðurbrotinn eftir lát White og hyggst hann mæta í útför hennar sem fram fer í heimalandi hennar síðar í þessum mánuði.