Tom Hanks lýsir eftir eiganda skilríkja

Myndin sem Tom Hanks birti á Twitter.
Myndin sem Tom Hanks birti á Twitter. Af Twitter

Það er nú varla fréttnæmt þegar að háskólanemar týna skilríkjunum sínum. En í tilviki Lauren, sem er nemandi við Fulham Unviersity í New York borg er það svo sannarlega fréttnæmt þar sem enginn annar en stórleikarinn Tom Hanks fann skilríkin.

Hanks birti mynd af skilríkjum stúlkunnar á Twitter í morgun og sagðist hafa fundið þau í almenningsgarði. Á Twitter skrifar Hanks að ef Lauren þurfi skilríkin geti hún nálgast þau á skrifstofu leikarans.

Fjölmargir hafa svarað Hanks á Twitter en ekki lítur út fyrir að Lauren sjálf hafi gefið sig fram. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant