Bieber sólar sig í Íslandsskýlu

Bieber tekur sig vel út í skýlunni.
Bieber tekur sig vel út í skýlunni. Af Facebook

Það tóku líklega langflestir Íslendingar eftir því þegar að Justin Bieber mætti hingað til lands í síðasta mánuði. Miðað við færslur á samfélagsmiðlum líkaði Bieber dvölin á Íslandi vel og skoðaði hann m.a. Suðurlandið og Vestmannaeyjar.

En nú virðist sem Bieber hafi gert nokkuð góð kaup hér á landi en á mynd sem birtist á Facebook síðu söngvarans má sjá hann skarta sundskýlu þar sem á stendur ICELAND.

Ekki lítur út fyrir að myndin sé tekin hér á landi, heldur á suðrænni slóðum. Á myndinni má sjá Bieber dýfa tánum ofan í sundlaug með kassagítarinn í hönd.

Bieber birti myndina fyrir 21 klukkustund og hafa tæplega 680.000 einstaklingar „líkað“ við hana síðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson