Skildi eftir bréf stílað á Carrey

Cathriona White og leikarinn Jim Carrey.
Cathriona White og leikarinn Jim Carrey. Skjáskot af Daily Mail

Cathriona White, sem hafði átt í ástarsambandi við leikarann Jim Carrey, féll fyrir eigin hendi í síðasta mánuði. White fannst látin á heimili sínu 28. september, en við hlið hennar fundust tóm lyfjaglös og bréf sem hún hafði skrifað.

Samkvæmt frétt Radaronline var eitt bréfanna stílað á Carrey, en heimildarmaður  segir að White hafi játað leikaranum ást sín og beðið hann að fyrirgefa sér.

Í bréfinu á einnig að hafa komið fram að White teldi sig ekki vera fyrir þennan heim og að hún óskaði þess að leikarinn myndi sjá um útför hennar. 

Carrey er bæði sagður skipuleggja og greiða fyrir útför White, en hún verður jarðsungin á Írlandi. 

Daily Mirror greindi síðar frá því að White hafi verið gift manni að nafni Mark Burton þegar hún lést, en þau höfðu skilið að borði og sæng. Burton þarf þó að gefa leyfi fyrir því að líkamsleifar White verði fluttar til heimalands hennar til greftrunar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson