Nicole Kidman vissi ekki af brúðkaupinu

Nicole Kidman var ekki boðið í brúðkaup dóttur sinnar.
Nicole Kidman var ekki boðið í brúðkaup dóttur sinnar. mbl.is/AFP

Leikkonan Nicole Kidman segist ekki hafa vitað af áformum dóttur sinnar Isabellu Cruise, en hún giftist unnusta sínum Max Parker við leynilega athöfn fyrr í þessum mánuði. Kidman er engu að síður glöð að dóttir hennar hafi fundið ástina og sé hamingjusöm.

Áður hafði verið greint frá því að Kidman hefði hjálpað dóttur sinni að skipuleggja brúðkaupið, en sá orðrómur reyndist ekki réttur ef marka má heimildarmann tímaritsins People.

Giftingin fór fram á Dorchester-hótelinu í London, og var aðeins nánustu vinum boðið. Hvorki bróðir Isabellu, Connor, né foreldrar þeirra voru því viðstödd við athöfnina.

Faðir brúðarinnar, Tom Cruise, er þó sagður hafa borgað brúsann.

Isabella Cruise gekk að eiga unnusta sinn á dögunum.
Isabella Cruise gekk að eiga unnusta sinn á dögunum. mbl.is/Cover Media
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson