300 km leigubílaferð á tónleika

Leigubílstjórinn reyndist vera fyrrverandi egypskur handboltakappi.
Leigubílstjórinn reyndist vera fyrrverandi egypskur handboltakappi. AFP

Söng- og leikkonan Liza Minnelli leggur ýmislegt á sig til að valda aðdáendum sínum ekki vonbrigðum, en hún ferðaðist um 320 kílómetra í leigubifreið eftir að fluginu hennar hafði verið aflýst vegna veðurs. Ferðin kostaði Minnelli aðeins 200 dali, sem samsvarar um 25.000 krónum. 

Minnelli, sem er 69 ára gömul, átti að koma fram á tónleikum í Wilmington í Norður-Karólínu sl. laugardag. Hún átti bókað flug frá Charlotte, en vélinni hennar var snúið við sökum óveðurs.

Minnelli dó hins vegar ekki ráðalaus heldur pantaði leigubifreið í gegnum Uber, að því er segir í frétt á vef BBC.

Talsmaður hennar segir að það hafi komið í ljós að ökumaður bifreiðarinnar hafi verið fyrrverandi landsliðsmaður Egypta í handbolta, Ahmed El-Awady, en hann keppti með Egyptum á Sumarólympíuleikunum árið 1992 og aftur 1996.

Hann ók Minnelli og tveimur aðstoðarmönnum hennar rúma 300 kílómetra aðfararnótt laugardags, en þau komust á leiðarenda snemma í morgunsárið.

Minnelli kom fram fyrir 1.500 manns á tónleikunum um kvöldið með sinfóníu Norður-Karólínu. 

Liza Minnelli lætur ekki deigan síga heldur reddar sér.
Liza Minnelli lætur ekki deigan síga heldur reddar sér. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson