Býst við að verða lögsótt af Vísindakirkjunni

Leah Remini er ekki par hrifin af Vísindakirkjunni.
Leah Remini er ekki par hrifin af Vísindakirkjunni. Skjáskot af Instagram

Leah Remini sagði skilið við Vísindakirkjuna árið 2013 með hjálp frá góðvinkonu sinni, söngkonunni Jennifer Lopez. Nú hefur hún skrifað bók um reynslu sína innan safnaðarins, en bókin nefnist Troublemaker: Surviving Hollywood and Scientology og kemur út í næsta mánuði.

Leikkonan undirbýr sig nú undir gríðarlegt mótlæti og hugsanlegar lögsóknir vegna bókarinnar sem er sögð lýsa kirkjunni á afar opinskáan máta. Remini heldur því meðal annars fram að innan kirkjunnar tíðkist bæði misþyrmingar og fjárkúganir, ef marka má frétt Daily Mirror.

Meðlimir kirkjunnar eru auk þess taldir hafa áhyggjur af því að Remini hyggist greina frá tengslum leikarans Tom Cruise og Kirstie Alley við söfnuðinn.

Remini hefur greint frá því að hún telji sig skuldbundna til að greina frá reynslu sinni innan kirkjunnar.

„Ég þurfti að senda skilaboð til að segja frá því að ég hefði ákveðið að gera þetta. Ég þarf að greina frá þessu opinberlega, annars er ég ekki að taka neina afstöðu.“

Eftir að Remini sagði skilið við söfnuðinn var hún brennimerkt sem „niðurbæld persóna“ (e. suppressive persona) af öðrum meðlimum kirkjunnar. Fyrrum vinkona hennar, leikkonan Kirstie Alley sagði meðal annars opinberlega:

„Þegar þú ákveður að koma fram og lýsa því yfir að Vísindakirkjan sé af hinu illa  ertu óvinur minn. Hún er ofstækisfull.“

Very excited about this too! @abcnews http://abcn.ws/1Fwzoyn #Troublemaker

A photo posted by Leah Remini (@leahremini) on Sep 29, 2015 at 2:16pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson