Selena Gomez gerir upp árin með Bieber

Selena Gomez.
Selena Gomez. mbl.is/AFP

Hollywood-stjarnan Selena Gomez ræðir um samband sitt við Justin Bieber í viðtali. Hún segir að sambandið hafi verið svo miklu meira en búið þegar þau hættu saman. 

Í viðtali við Refinery29 segist hún ekki hafa neinn tíma til þess að vera reið út í sinn fyrrverandi.

„Það er bara engin reiði í gangi. Sambandsslit okkar hafa fengið farsælan endi á mjög heilbrigðan hátt. Það er allt gott á milli okkar og ég er mjög stolt af því ferðalagi sem hann er á. Fólk á það til að búa til meira drama úr þessum sambandsslitum en tilefni er til. Við ólumst upp saman. Við höfum bæði gert mistök. Þannig er það bara,“ sagði hún í samtali við blaðið.

Í viðtalinu sagði hún að það væri hægt að vinna í hlutum og reyna að laga þá en stundum verði fólk að horfast í augu við það sem er fyrir framan það og samþykkja það. Stundum er það ansi erfitt. Hún segir jafnframt að það hafi margir orðið á vegi hennar, sumir bara í stuttan tíma og aðrir í lengri tíma. Það sé einfaldlega bara gangur lífsins.

Selena Gomez segir jafnframt í viðtalinu að hún vilji alls ekki vera eitthvert aumt fórnarlamb.

„Ég vil vera sterk og fyrirmynd annarra stelpna. Ég vil að aðrar stelpur viti að við höfum alltaf val og eigum að standa upp fyrir sjálfum okkur.“

Justin Bieber á MTV-verðlaunahátíðinni.
Justin Bieber á MTV-verðlaunahátíðinni. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þetta er ekki rétti tíminn til að vera einn. Komdu þér út úr húsi. Viss aðili fær rauða spjaldið hjá þér.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant