Tracy Morgan aftur í beinni

Tracy Morgan ásamt eiginkonu sinni Megan Wollover á Emmy verðlaunaafhendingunni …
Tracy Morgan ásamt eiginkonu sinni Megan Wollover á Emmy verðlaunaafhendingunni nýverið. AFP

Gamanleikarinn Tracy Morgan var gestgjafinn í þætti Saturday Night Live í nótt. Morgan talaði þar um bílslysið sem hann lenti í á síðasta ári og fullyrti að hann hefði aldrei gengið heill til skógar og trúlega væri hann skarpari eftir slysið ef eitthvað væri.

Morgan kom nýverið í fyrsta sinn fram opinberlega eftir að hafa hlotið heilaskaða og beinbrot í slysinu. Hann var í dái í tvær vikur og tvísýnt var um hvort hann lifði það af og hvernig ástand hans væri eftir það. Vinur hans, grínistinn James McNair, lét lífið í slysinu þegar vörubifreið ók aftan á bifreið sem þeir voru farþegar í.

„Slysið var hræðilegt en það sýndi mér þó hvað ég nýt í raun mikils stuðnings og umhyggju,“ sagði Morgan í upphafsræðu þáttarins. Tina Fey og Alec Baldwin, samleikarar hans í 30 Rock-þáttunum, komu einnig fram í þættinum og léku í atriði þar sem Tracy Jordan, karakter hans úr 30 Rock, lendir í lífshættu.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson