Nýtt par í Hollywood

Gigi Hadid gekk pallana fyrir nærfatarisann Victoria's Secret 2015.
Gigi Hadid gekk pallana fyrir nærfatarisann Victoria's Secret 2015. mbl.is/AFP

Slúðurmiðlar vestanhafs halda því fram að fyrrum meðlimur strákasveitarinnar One Direction, Zayn Malik, og ofurfyrirsætan Gigi Hadid, sem meðal annars hefur unnið fyrir Victoria's Secret, séu að slá sér upp.

Hadid sleit nýverið sambandi sínu við söngvarann Joe Jonas, sem hún hafði verið að hitta undanfarna mánuði. Malik hefur hinsvegar nýverið slitið trúlofun sinni við bresku söngkonuna Perrie Edwards.

Talsmaður tímaritsins Us Weekly sagði að samband þeirra sé afar nýtt af nálinni og þau væru að sjá hvert það leiddi.

Til skötuhjúanna sást á sunnudagskvöldið þar sem þau gerðu sér glaðan dag eftir afhendingu Bandarísku tónlistarverðlaunanna, þar sem fyrrum hljómsveitarmeðlimir Maliks hlutu tvenn verðlaun.

Frétt mbl.is: Var aldrei ánægður í One Direction

Skötuhjúin Gigi Hadid og Zayn Malik.
Skötuhjúin Gigi Hadid og Zayn Malik. Skjáskot Us Weekly
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
3
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant