Segir hjónabandið óbærilegt og óskaplega þreytandi

Will Smith og Jada Pinkett Smith mæta á frumsýningu kvikmyndarinnar …
Will Smith og Jada Pinkett Smith mæta á frumsýningu kvikmyndarinnar Concussion. mbl.is/AFP

Will Smith lýsir hjónabandi sínu og leikkonunnar Jada Pinkett Smith sem óbærilegu og óskaplega þreytandi, en þau hafa verið gift í 20 ár. Samkvæmt frétt Daily Mail eru Þau þó ekkert á þeim buxunum að skilja.

„Við erum búin að vera gift í 20 ár og við höfum spurt okkur sjálf hvert leyndarmálið að baki hjónabandinu sé. Þegar allt kemur til alls felst það bara í því að gefast ekki upp.“

„Þú getur ekki ætlast til þess að það verði auðvelt, en hjónaband okkar er það erfiðasta, óbærilegasta og mest þreytandi verkefni sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Og, þú veist, við erum bara ekki fólk sem gefst upp.“

Leikarahjónin Will og Jada Pinkett Smith hafa lengi þurft að þola sögusagnir þess efnis að þau séu að skilja. Raunar svo oft að þau hafa margsinnis þurft að svara fyrir orðróminn, bæði á samfélagsmiðlum og í viðtölum.

Í ágúst deildi Will Smith færslu á Facebook síðu sinni þar sem hann lýsti því yfir að hann sé þreyttur á sífelldum sögusögnum.

„Í ljósi margendurtekinna og endurtekningarsamra sögusagna... Jada og ég erum EKKI AÐ SKILJA!!!“

„Ég lofa því að ef ég ákveð einhvern tímann að skilja við drottninguna mína mun ég sjálfur segja ykkur frá því.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson