Hefur ekki hitt dóttur sína í tvö ár

Tom Cruise stillir sér upp á rauða dreglinum.
Tom Cruise stillir sér upp á rauða dreglinum. mbl.is/AFP

Að sögn erlendra fréttamiðla hefur leikarinn Tom Cruise ekki hitt dóttur sína, Suri, í rúm tvö ár. Heimildir fregna ennfremur að móðir Suri, leikkonan Katie Holmes, vilji halda dóttur sinni frá Vísindakirkjunni, en Cruise er einn frægasti meðlimur safnaðarins.

Samkvæmt frétt Mirror hefur því einnig verið haldið fram að meðlimir Vísindakirkjunnar séu ekki hrifnir af því að leikarinn umgangist stúlkuna.

Ástæðan er talin vera skoðanir móður hennar á kirkjunni, en hennar vegna hefur dóttirin fengið á sig neikvæðan stimpil, hún sé „möguleg upptök vandræða“ (e. potential trouble source).

Haft var eftir ónefndum heimildarmanni að leikarinn virðist ekki sýna dóttur sinni mikinn áhuga.

„Hann virðist ekki hafa áhuga á því að tilheyra daglegu lífi Suri. Katie gerir sitt besta, en það er ekkert sem getur komið í stað föður hennar.“

„Hann hefur ekki sést með dóttur sinni í meira en tvö ár, sem er meira en fimmtungur ævi hennar.“

Hvorki Cruise né talsmenn hans hafa tjáð sig um málið, þrátt fyrir fyrirspurnir Mirror.

Tom Cruise heldur á dóttur sinni, Suri, árið 2012.
Tom Cruise heldur á dóttur sinni, Suri, árið 2012. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson