Anne Hathaway með barni

Anne Hathaway stillir sér upp á rauða dreglinum fyrir Óskarsverðlaunin …
Anne Hathaway stillir sér upp á rauða dreglinum fyrir Óskarsverðlaunin 2013. mbl.is/AFP

Leikkonan Anne Hathaway á von á barni með eiginmanni sínum, framleiðandanum Adam Shulman. Skötuhjúin gengu í hjónaband 2012, en þetta er þeirra fyrsta barn.

Samkvæmt heimildarmanni E! er meðgangan komin vel á veg, en sögusagnir fóru fyrst á flug þegar Hathaway mætti á frumsýningu myndar sinnar The Intern í september.

Í vikunni sást síðan til hjónanna, þar sem leikkonan skartaði þessari líka fínu bumbu.

Hathaway hefur oftsinnis tjáð sig opinberlega um að hún þrái að verða móðir, en hún sagði til að mynda í viðtali við tímaritið Vogue:

„Guð minn góður. Mig langar að verða móðir og ég býst við að elska börnin mín af miklum ofsa. Ég hugsa um þetta öllum stundum. Ég veit það er kjánalegt að hugsa svona mikið um þetta, því  börnin mínu munu ákvarða hvernig móðir ég verð. Ég get ekki beðið eftir að hitta þau.“

Það eru því væntanlega gleðilegir tímar framundan hjá hjónunum.

Leikkonan Anne Hathaway skartar þessari líka sætu óléttubumbu.
Leikkonan Anne Hathaway skartar þessari líka sætu óléttubumbu. Skjáskot E-online
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þessi dagur er betri en flestir þar sem þú hefur gleymt gömlum byrðum. Gakktu úr skugga um að þú misskiljir ekki neitt áður en þú skuldbindur þig til einhvers.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Halldórsdóttir
2
Lone Theils
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant