Mary Kate Olsen gengin út

Olivier Sarkozy og eiginkona hans, Mary Kate Olsen.
Olivier Sarkozy og eiginkona hans, Mary Kate Olsen. Skjáskot Page Six

Leikkonan og tískudívan Mary Kate Olsen gekk að eiga unnusta sinn, Olivier Sarkozy, um helgina. Parið hefur verið að slá sér upp undanfarin þrjú ár en þau trúlofuðu sig í fyrra.

Olsen lét ganga á eftir sér, en hún játaðist eiginmanninum þegar hann bað hennar í annað sinn þar sem þau voru á rómantísku ferðalagi um Jamaíku.

Samkvæmt Contactmusic var athöfnin, sem fór fram á Manhattan, smá í sniðum enda var aðeins 50 manns boðið. Þá var gestum ekki heimilað að vera með snjallsíma á meðan herlegheitin stóðu yfir.

Að sögn heimildarmanns var gestum boðið upp á sígarettur og kokteila í massavís, en hátíðahöldin fóru fram á einkaheimili.

Fyrr á árinu greindi Olsen frá því að hún væri ekkert að drífa sig í því að ganga niður kirkjugólfið, en eitthvað hefur skötuhjúunum þó snúist hugur.

Olivier Sarkozy er hálfbróðir fyrrverandi Frakklandsforseta, Nicholas Sarkozy. Hann var áður giftur rithöfundinum Charlotte Bernard, en þetta er fyrsta hjónaband Olsen.  

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Nú gengur það ekki lengur að þú skjótir á frest að laga það sem aflaga hefur farið heima fyrir. Notaðu tækifærið og hrintu einhverju sem þú hefur á prjónunum fyrir sjálfan þig í framkvæmd.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson