Förðunarlínan seldist upp á mínútu

Kylie Jenner stilir sér upp ásamt vinkonum sínum.
Kylie Jenner stilir sér upp ásamt vinkonum sínum. Instagram @kyliejenner

Kardashian / Jenner systurnar halda áfram að tröllríða heimsbyggðinni, en vinsældir þeirra virðast alls ekki fara dvínandi.

Í gær ýtti yngsta systirin, Kylie Jenner, nýrri förðunarlínu úr vör. Að sjálfsögðu var um varaliti og gloss að ræða, enda leggur Jenner mikið upp úr föngulegum stút.

Það er þó ekki í frásögur færandi, nema fyrir þær sakir að varalitir Jenner seldust upp á innan við mínútu frá því að sala á þeim hófst. Vefsíðan Mirror greindi frá þessu.

Jenner segir að förðunarlínan hafi verið lengi í bígerð.

„Búin að dreyma þennan dag í tvö ár. Þetta er búið að vera langt, en ótrúlegt ferli. Ég hef heimsótt verksmiðjuna og setið með mögnuðum efnafræðingum til að búa til fullkomna liti fyrir ykkur.

Ég gaf allt sem ég átti í þessa varaliti og ég vona að þið elskið þá eins mikið og ég. Það er meira á leiðinni og ég vona að þetta eigi bara eftir að verða betra. Njótið.“

Það er greinilegt að varir stúlkunnar hafa sett mark sitt á heimsbyggðina, því fyrr í mánuðinum greindi lýtalæknir frá því að það hafi orðið sprenging í eftirspurn eftir varafyllingum eftir að Jenner játaði að hún færi reglulega í slíkar aðgerðir. Á einni nóttu jókst eftirspurnin á stofu hans um heil 700%.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þarft að takast á hendur ítarlega rannsókn á málefni, sem þú berð fyrir brjósti. Hlustaðu á þína innri rödd. Vertu stór í sniðum.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson