Nýtt stjörnupar í Hollywood?

Leikkonurnar Sarah Paulson og Holland Taylor eru sagðar vera nýjasta …
Leikkonurnar Sarah Paulson og Holland Taylor eru sagðar vera nýjasta stjörnuparið í Hollywood. Skjáskot Mirror

Leikkonan Holland Taylor hefur gert opinbert að hún eigi í sambandi við mun yngri konu. Hún segir að það hafi ekkert upp á sig að koma út úr skápnum, enda sé hún ekki inni í honum.

Taylor vildi ekki gefa uppi hver konan er. Daily Mirror telur sig þó vita að leikkonan Sarah Paulson, sem gerði garðinn frægan í þáttunum American Horror Story, sé leynikærastan.

„Þetta er það dásamlegasta sem gæti nokkurn tímann komið fyrir mig“ greindi Taylor frá í viðtali.

„Ég hef ekki komið út úr skápnum vegna þess að ég er úti. Ég lifi lífinu úti.“

„Það er mikill aldursmunur á okkur sem ég er viss um að sjokkerar marga.“

Taylor sagði að dauði móður hennar hefði orðið til þess að hún fór að endurhugsa persónuleg sambönd sín.

„Skyndilega rann upp fyrir mér að ég var að lifa fremur yfirborðskenndu lífi. Ég hafði ekki upplifað frábær ástarsambönd, og hafði því haldið mig út af fyrir mig.“

 Taylor deildi þessari fallegu mynd af Paulson með fylgjendum sínum á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú ert í aðstöðu, þar sem gömlu góðu ráðin duga hvergi. Viðkvæmt leyndarmál er þér falið svo gættu þess að bregðast ekki því trausti.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Birgitta H. Halldórsdóttir
4
Inger Wolf
5
Sofie Sarenbrant