Íslensk flugfreyja leikur á móti knattspyrnuleikmanninum Lionel Messi í nýju myndbandi flugfélagsins Qatar Airways sem birtist í gær.
Myndbandið sýnir öryggisleiðbeiningar fyrir flug á skemmtilegan hátt þar sem fótbolti er í fyrirrúmi en Qatar er einn helsti styrktaraðili FC Barcelona.
Í myndbandinu sýnir íslenska flugfreyjan, Kristín Eva Geirsdóttir, áhorfendum neyðarútganga og hver skyldi standa við hlið hennar á meðan nema einn besti knattspyrnuleikmaður heims, Lionel Messi.
Í viðtali við Morgunblaðið í maí sagði Kristín Eva flugfélagið gera strangar kröfur og að eftir tvo mánuði í starfi væru flugfreyjur orðnar eins og vel þjálfaðir hermenn.
Kristín er ekki fyrsti Íslendingurinn til að leika á móti Messi því það gerði Þorsteinn Sindri Baldvinsson einnig í Pepsi-auglýsingu vorið 2014.