Málið hófst þegar einhver óþekktur prakkari teiknaði einfalda mynd af typpi í snjóinn á frosinni á í borginni Gautaborg í Svíþjóð.
Fjöldi fólks hvatti borgina til þess að fjarlægja listaverkið. Það reyndist erfitt því ísinn á ánni var ekki þykkur og þurfti því að leigja inn verktaka sem áttu nægilega langt verkfæri. Var þannig hægt var að eyðileggja listaverkið frá landi. Málið vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum.
Sweden's Giant Snow Penis Was Erased... So This Man Created An Even Bigger One: The… https://t.co/E0WHzd4Vpu pic.twitter.com/vluKDy5sC5
— Doyle Global Media (@DoyleGlobal) January 22, 2016
Því spratt upp fljótlega upp Facebookhópur sem ber hið skýra nafn Återstell snökuken (ísl: Endurreisum snjótyppið). Hópurinn krafðist þess að listaverkið yrði endurgert. Þá ákvað verktakinn sem fjarlægði upprunalega listaverkið að búa til nýtt listaverk í stækkaðri mynd á öðrum stað í borginni.
Var notast við vélsleða í þetta skiptið. Hið nýja snjótyppi er svo stórt að listaverkið er aðeins sjáanlegt í heild sinni úr lofti. Vonast stofnendur Facebookhópsins nú til að þetta listaverk fái að standa, alla veganna þar til ísinn bráðnar með vorinu.
Sjá frétt sænska ríkissjónvarpsins.